Hans og Gréta
Failed to add items
Add to basket failed.
Add to Wish List failed.
Remove from Wish List failed.
Follow podcast failed
Unfollow podcast failed
Buy Now for $4.99
No valid payment method on file.
We are sorry. We are not allowed to sell this product with the selected payment method
-
Narrated by:
-
Árni Beinteinn Árnason
About this listen
Hans og Gréta búa ásamt föður sínum og stjúpu í litlu húsi. Það er lítið að bíta og brenna í litla húsinu og stjúpunni finnst börnin vera til trafala. Hún skipar því föður þeirra að taka börnin með sér út í skóg og skilja þau eftir, djúpt inni í skóginum. Þegar börnin átta sig á því hvernig fyrir þeim er komið reyna þau að finna leiðina heim.
Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.
Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
©2022 SAGA Egmont (P)2022 SAGA Egmont